Fara í efni

Bríet á Telebar

Upplifðu Menningarnótt á Telebar við Austurvöll

Laugardaginn 22.ágúst frá kl. 16:00 - 17:30 

Lifandi tónlist og góð stemning
Upplifðu Menningarnótt á Telebar þar sem ljúffengir drykkir, lifandi tónlist og frábær stemning mynda ógleymanlega kvöldstund. Söngkonan Bríet, ein ástsælasta rödd landsins, kemur fram og setur tóninn fyrir skemmtilega stemningu.

Listamaðurinn Hafsteinn Þráinsson, betur þekktur sem Ceasetone, mun koma fram áður en Bríet stígur á stokk og flytja glænýja tónlist ásamt gömlum perlum.


Aðgangur ókeypis!

 


Bríet
Bríet skipaði sér hratt á meðal fremstu flytjenda landsins og hefur heillað tónlistarunnendur frá því að hún gaf frá sér sín fyrstu lög árið 2018, en hún er þekkt fyrir mikla sviðsnærveru, sköpunarkraft og einlægni.

Ceasetone
Hafsteinn Þráinsson betur þekktur sem Ceasetone æltar að koma fram á Parliament á Menningarnótt og flytja fullt af glænýrri músík sem hefur verið í vinnslu upp á siðkastið ásamt nokkrum gömlum perlum. Hafsteinn er þjóðinni kunnugur sem lagahöfundur, pródúsent, útsetjari og gítarleikari með hinum ýmsu af þekktasta tónlistarfólki þjóðarinnar til hliðar þess að gefa út músík undir sínum eigin formerkjum sem Ceasetone.