Fara í efni

Fógetagarðurinn

Fallegt útisvæði í hjarta borgarinnar 

Þegar vel viðrar lifnar Fógetagarðurinn við og breytist í notalegt útisvæði þar sem tilvalið er að njóta sumarsins í miðborginni. 

Iceland Parliament hótelið setur upp borð og stóla í garðinum svo gestir geta sest niður, slakað á og notið góðra stunda í skjólsælu og fallegu umhverfi. 

Njóttu veitinga frá Telebar
Hægt er að panta ljúffenga drykki og veitingar frá Telebar og njóta þeirra úti í garðinum. Barseðillinn er í boði alla daga frá kl.12:00 - 22:00. 

Happy Hour er frá 16:00 - 18:00 alla daga
Cocktail Hour er frá 20:00 - 22:00 alla daga

Skoða barseðil

Sögulegur staður
Fógetagarðurinn er staðsettur við Aðalstræti og Kirkjustræti, í elsta hluta borgarinnar þar sem saga Reykjavíkur á sér djúpar rætur. Í garðinum stendur fallegt og gamalgróið reynitré sem talið er eitt það elsta í Reykjavík og hefur orðið eins konar tákn fyrir kyrrðina og söguna sem einkenna staðinn.
Í dag myndar garðurinn skjólgott og hellulagt torg þar sem gestir geta notið sín í rólegu umhverfi umvafðir sögu borgarinnar.