Fara í efni

Salsaball og kvöldverður

Ert þú á leiðinni á sjóðheitt salsaball með hljómsveitinni Barrio 27 í Sjálfstæðissalnum þann 14.ágúst ? 
Gerðu kvöldið enn betra með tveggja rétta kvöldverði Hjá Jóni fyrir tónleikana. Bókaðu borð og njóttu kvöldsins til fulls. 

Bóka borð

Lifandi salsatónar allt kvöldið

Barrio 27 er 16 manna salsahljómsveit stofnuð árið 2024 af slagverksleikaranum Alexöndru Rós Norðkvist. Hljómsveitin er þekkt fyrir kraftmikla framkomu og einstakt prógramm sem fær dansgólfið til að lifna við. Markmið sveitarinnar er að efla dansmenningu á Íslandi – og nú gefst þér tækifæri til að taka þátt.

Þann 14. ágúst 2026 heldur Barrio 27 sitt fyrsta alvöru salsaball í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll (gamla NASA).
Kvöldið hefst með stuttri byrjendakennslu í salsa kl 20:30, svo allir geta tekið þátt – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða ert vanur dansari.

Að kennslu lokinni stígur hljómsveitin á svið kl 21:00 og fyllir salinn af lifandi salsa-tónum sem halda dansgólfinu á hreyfingu fram að miðnætti.

Komdu með vini, maka eða mættu einn – það eina sem skiptir máli er að mæta tilbúinn að dansa.

Tryggðu þér miða í dag!