Fara í efni

Haltu viðburð á Telebar

Glæsilegt viðburðarými í hjarta Reykjavíkur

Leitarðu að einstökum stað fyrir næsta viðburð? Telebar, staðsettur á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, býður upp á glæsilegt og sveigjanlegt rými fyrir fjölbreyttar samkomur. 

Telebar hentar einstaklega vel fyrir fyrirtækjaviðburði, móttökur, útgáfuteiti, afmæli, erfidrykkjur og aðrar standandi samkomur þar sem góð stemning, fagleg þjónusta og frábær staðsetning skipta máli. 

Rýmið tekur allt að 200 standandi gesti og engin salarleiga er innheimt. Þess í stað hjálpum við þér að setja saman lausn sem hentar þínum hópi og þínum viðburði, hvort sem um er að ræða drykkjarmiða, fingramat, sérvalinn matseðil eða aðra sérsniðna þjónustu.

Þegar vel viðrar gefst einnig tækifæri til að nýta hinn fallega og sögulega Fógetagarð sem liggur við Telebar. Garðurinn skapar einstaka umgjörð fyrir móttökur, sumarteiti og aðra viðburði undir berum himni í hjarta Reykjavíkur.

 Hafðu samband og fáðu tilboð í þinn viðburð!


hjajoni@icehotel.is | sími: 5133120


Sjá nánari upplýsingar um Telebar
Sjá nánar