Jólahlaðborð og Jólaball
Jólahlaðborð með skemmtiatriðum og dansleik
Komdu í hátíðlega stemningu í glæsilegum Sjálfstæðissalnum á Iceland Parliament Hotel, þar sem veitingastaðurinn Hjá Jóni stillir upp sínu glæsilega jólahlaðborði. Yfir borðhaldinu munu veislustjórar sjá um skemmtiatriði og dansleikur tekur við síðar um kvöldið - fullkomin jólastund með fjölskyldu, samstarfsaðilum eða vinafólki.
Öll föstudagskvöld og laugardagskvöld frá 20.nóvember til 12.desember
Verð: 19.900,- á mann
Veislustjórar kvöldsins, þeir Tómas Helgi Baldursson og Gunnar Smári Jóhannesson, sjá um að skemmta gestum og halda uppi góðri stemningu yfir borðhaldinu. Síðar um kvöldið tekur The Bookstore Band við og skemmtir gestum með lifandi tónlist og dansleik.

Fyrir nánari upplýsingar eða bókanir hafið samband á parliamentmeetings@icehotels.is eða í síma 444 4130

Veislustjórar kvöldsins
Tómas Helgi Baldursson og Gunnar Smári Jóhannesson sjá um að halda uppi góðri stemningu yfir borðhaldinu og leiða gesti í gegnum kvöldið með húmor, sögum og léttleika.
Þeir félagar eru hreinræktaðir Vestfirðingar og hafa á undanförnum árum látið að sér kveða í leikhúsi, sjónvarpi og óperu. Með reynslu sína úr sviðslistum að vopni kunna þeir vel að segja góða sögu og skapa stemningu og kvöldið verður því bæði líflegt og notalegt.
Gestir mega búast við skemmtilegum sögum, húmor og tónlist sem fléttast inn í borðhaldið.

Jólaviðburðir sem henta öllum
Veitingastaðurinn Hjá Jóni og Iceland Parliament Hotel bjóða uppá fjölbreytta möguleika fyrir bæði hópa og einstaklinga - hvort sem leitað er að hátíðlegu jólahlaðborði eða notalegum kvöldverði.



JÓLAHLAÐBORÐ 
FORRÉTTIR
Dillgrafinn lax með graflaxsósu
Síld – jólasíld, karrísíld og rauðrófusíld
Fiskisúpa Jóns forseta
Heitreyktur lax með klettasalati, piparrót og sætum pekanhnetum
Nauta-carpaccio með klettasalati, trufflum og Feyki 24+
Innbakað sveita-pâté með trufflumajónesi
Rauðrófusalat með geitaosti, fennel og dilli
Nýbakað brauð og rúgbrauð
Laufabrauð • Smjör með garðablóðbergi
AÐALRÉTTIR
Hægelduð kalkúnabringa með appelsínum og rósmaríni
Grillað lambalæri með hvítlauk og garðablóðbergi
Dönsk grísapurusteik
Taðreykt hangikjöt af lambalæri
Sætkartöfluhnetusteik
MEÐLÆTI
Íslenskar kartöflur í uppstúf
Stökkt jurtasmælki með parmesan-osti
Hunangsgljáð rótargrænmeti
Grænar baunir og rauðkál með trönuberjum
Waldorf-salat
Brokkolísalat með beikoni og sesamfræjum
Sætkartöflusalat með döðlum og fetaosti
Ferskt salat
SÓSUR
Portvínssósa
Villisveppasósa
EFTIRRÉTTIR
Frönsk súkkulaðikaka með hvítu súkkulaði
Risalamande
Crème brûlée í jólabúningi
Þeyttur rjómi
Blönduð ber
Franskar makkarónur
Kókostoppar

Sjá jólahlaðborð með ofnæmisvöldum
Öll verð eru í íslenskum krónum. Innifalið í verði eru þjónustugjald og virðisaukaskattur.
Mikilvægt er að upplýsa starfsfólk um óþol og ofnæmi áður en pantað er.