Marguet Hjá Jóni
Benoit Marguet x Hjá Jóni
Kvöldverður og kampavínspörun, Benoit Marguet verður á staðnum þann 14. apríl og spjallar við gesti!
Seðillinn verður í boði 14. - 19. apríl!
Champagne Marguet
Kampavínin frá Marguet, hafa m.a verið álitin meðal bestu kampavínum heims, og skora ávallt hátt hjá helstu vínsérfræðingum. Benoît Marguet er maðurinn á bak við þetta spennandi kampavínshús, og tilheyrir hann þeirri kynslóð vínræktenda sem hafa haft hvað mest áhrif á vínrækt í Burgundy og Champagne síðasta áratuginn.
Champagne Marguet er staðsett í Ambonnay, þar sem ræktun fjölskyldunnar hófst í kring um 1870. Benoit er fimmta kynslóð Marguet fjölskyldunnar, og þegar hann tók við keflinu af föður sínum hófst hann handa við að breyta ræktuninni yfir í lífræna ræktun. Hann hefur innleitt á ný, alda gömul vinnubrögð, eins og að plægja akurinn með hestum, í stað þungra vinnuvéla, á þann veg fæst meira súrefni í jarðveginn, og mengun verður engin.
Ræktun Marguet er ekki bara lífræn, heldur er hún einnig bíódýnamísk, sem þýðir að tekið er mið af jafnvægi náttúrunnar, allt frá lífríki til stöðu himintungla, og er sveipuð ákveðinni dulúð. Bíódýnamík er í raun nátengd sjálfsþurftarbúskap. Það er engin spurning að þessar áherslur eru að skila sér í algerlega framúrskarandi víni sem enginn má láta fram hjá sér fara. Framleiðsla Marguet er lítil, enda eingöngu 8 hektarar til umráða, og er kaupendum því úthlutaður kvóti ár hvert og margir myndu meira vilja.
Marguet hefur mikla ástríðu fyrir kampavíni og hinni fullkomnu vínpörun. Í samstarfi við Hjá Jóni verður hann með kynningu á kampavínunum yfir borðhaldi þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast vínunum betur og spyrja hann spurninga.
Matseðill
Grásleppuhrogn
Skyr, bókhveiti, rauðlaukur, wasabi
Foie Gras
Brioche-brauð, rifsber, rifin önd, jarðskokkar
Saltkringla
Reykt paprika, mascarpone og graslaukur
Þorskur og humar
Tómatar, humarsoð, dill
Sítrónubaka
Ítalskur marengs
Verð: 14.900
Kampavínspörun: 10.900

